Breytingaskeiðið á toppnum! 11. mars

Breytingaskeiðið á toppnum! 11. mars

14.900 kr.

Breytingaskeiðið og „toppur“ er kannski ekki alveg í samræmi við hvernig þú upplifir þig einmitt núna?

 

En það mun aldeilis breytast! Topp orka og vellíðan í boði!
Tveggja vikna staðar- og online námskeið fyrir konur 45-60+ ára!

 

Vanlíðan, þreyta, orkuleysi, verkir, þrjósk magafita, sem ekkert virðist bíta á.
Svona þarf þetta ekki að vera!

 

Sex góðar og gildar ástæður til að sækja þetta námskeið:
  1. Þú ert þreytt á að vera þreytt!
  2. Þú vilt losna við bólgur, liðverki, þurra slímhúð og heilaþoku!
  3. Þú ert búin að prófa margt en ekki sykurlaust lágkolvetna og hormónavænt mataræði.
  4. Þú vilt vita meira um hormóna og hormónauppbótarmeðferð.
  5. Þú vilt losna við þrjósku kviðfituna og segja skilið við sykurpúkann fyrir fullt og allt!
  6. Þú ert spennt fyrir að uppgötva hvað margt annað lagast þ.á.m. meltingin, svefninn og minnið!

Það er ýmislegt gott að gerast í heimi kvenna á breytingaskeiðinu um þessar mundir. Systur! Við erum rétt að byrja, við höfum haft hátt um hríð og heimurinn er að hlusta. Nýjar stórar rannsóknir, fjarlæging á viðvörunum (black box warnings) á hormónalyfjum í USA og nýtt viðhorf og skilningur á heilsu kvenna.

Við konur förum í gegnum breytingaskeiðið á mismunandi hátt, hormónauppbót er ekki lausnin fyrir allar konur og breyting á lífsstíl getur breytt öllu til batnaðar.

Þetta námskeið fjallar fyrst og fremst um þig! Að þér líði miklu betur, orkan fari í topp, létta á öllum einkennum, næra líkama og sál og borða dásamlegan mat.

Ó jú! Mataræðið er sykurlaust og lágkolvetna en nóg af náttúrulega sætu tríti og kósýlegheitum. Nema hvað!

Nokkrar staðreyndir um breytingaskeiðið:
  1. Staðfest hafa verið 48 mismunandi einkenni tengd við breytingaskeiðið.
  2. 97% af konum á breytingaskeiðinu í Danmörku hafa eitt eða fleiri einkenni.
  3. Lífsstílsþættir og breytingar á lífsstíl hafa veruleg áhrif á flest af þessum einkennum.
  4. Undirliggjandi heilsufarsþættir, sem oftast eru bólgutengdir, hafa áhrif á breytingar á hormónum á breytingaskeiðinu.
  5. Breytingaskeiðið heftst með fyrirtíðahvörfum kringum 45 ára aldurinn, og eftirtíðahvörf, sem vara að eilífu!
  6. Hormónauppbótarmeðferð (HRT) hefur í nær 25 ár verið misskilin og mistúlkuð.
Nokkur dæmi um helstu og velþekkt einkenni sem konur upplifa:
  • Hitakóf, nætursviti.
  • Ófullnægjandi svefn.
  • Þreyta og orkuleysi.
  • Heilaþoka og skert minni.
  • Verkir í liðum og vöðvum.
  • Þyngdaraukning, sérstaklega um maga og miðjuna.

Nokkur dæmi um önnur einkenni, sem við tengjum ekki endilega við breytingaskeiðið:

  • Höfuðverkur og mígreni.
  • Þurrkur í slímhúð, alls staðar.
  • Endurteknar blöðrubólgur og þvagrásarsýkingar.
  • Skert eða engin kynlífslöngun.
  • Frosin öxl.
  • Húðvandamál; bólur og ofsakláði.
  • Burning mouth syndrome ( brunatilfinning í munnholi).
  • Meltingarvandamál.
Ég er með þetta! Það er engin töfrapilla en lausn sem er töfrum líkast!
Við skulum bara hafa það skemmtilegt á meðan við lærum!
Skráðu þig strax í dag og láttu þig hlakka til! Nýtt líf og betri líðan bíða þín!

 

Fyrsti kennslutími: miðvikudagur 11. mars kl 18 – 20.30 í Reykjavík 

  • Hormónabúskapurinn, efnaskiptaheilsa og HRT.
  • Einkenni og líðan tekin fyrir og lausnamiðaðar úrlausnir.
  • Mataræðið. Hvað áttu að borða.
  • Meltingin mikilvæga.
  • Markmið, skipulag, rútína, góð ráð.
  • Ráðleggingar um hagnýt bætiefni.
  • Spurningar & Svör

Annar kennslutími: miðvikudagur 25. mars kl 18 á Zoom (upptaka af kennslu ef þú kemst ekki)

  • Spurningar & Svör.
  • Annað eftir þörfum.
 Innifalið í námskeiðinu: 
  • Tveir kennslu fundir:

-Sá fyrsti í Heilsumiðstöð Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík.

-Sá síðari á Zoom

  • Aðhald, stuðningur, hvatning og innblástur á lokuðu svæði á fb í 14 daga!
  • Glærur frá kennslu.
  • Hráefnislisti með lágkolvetna hormónavænum mat.
  • Viku plan með tillögum af samsetningu á hráefninu.
  • Uppskriftir
  • Bætiefnalisti
  • Og margt margt fleira!

Það með litla letrinu.

  • Ég mæli með að þú skráir þig sem fyrst. Plássin eru takmörkuð!
  • Þegar þú hefur skráð þig og greitt er þitt pláss tryggt!
  • Þú færð póst frá Þorbjörgu áður en námskeiðið hefst með upplýsingum og aðgang á lokaða FB hópinn.
  • Öll kennslugögn verða í lokaða FB hópinn, þú getur hlaðið þeim niður í tölvuna eða í símann þinn.
  • Zoom kennslan verður tekin upp og  þú getur horft á videó upptökuna ef þú kemst alls ekki á fundinn í raun tíma.
  • Ég mæli með að þú eigir eða fáir lánaða bókina mína Ketófllex 3-3-1 (kaupa hér). Þar eru mjög góðar og fræðandi upplýsingar og uppskriftir sem þú vilt ekki vera án.
  • Hikaðu ekki við að hafa samband ef þú ert með spurningar
    thorbjorg@thorbjorg.dk