Omega – 3 fiskiolía gerir svo miklu meira fyrir þig og heilsuna en þú heldur – gæðin verða að vera í topp!
Við erum sennilega mörg sem munum eftir litlu gulu lýsiskúlunum sem við fengum úthlutað í skólanum í den. Ásetningurinn var góður; að gefa skólabörnum viðbót af omega olíu, svona rétt yfir veturinn og skammdegið. Ég veit ekki hvað það var mikið af DHA eða EPA í einni pillu, og hvort hún í raun hafi gert eitthvað gagn. En ég þori að veðja, að fiskur hafi oftar verið á borðum fyrir 50 árum síðan, miðað við í dag, og það hefur gert sitt gagn fyrir okkur. Á mínu heimili borðuðum við fisk oft í viku. Ég var send í fiskbúðina á Laugarveginum til að kaupa ýsuflök eða -bita beint í soðið. Mér þótti fiskur alltaf góður, með kartöflum, floti og oft tómatsósu. Stundum var lúða, soðin með lárviðarlaufum og sósa löguð úr soðinu.
Við þurfum öll omega- 3 fitusýrur
Það eru margar tegundir af lýsi (lifrarolíu) og fiskiolíum á markaðnum í dag. Eins og með mörg önnur bætiefni getur verið erfitt að átta sig á hvað á velja og afhverju:
Fiskiolíaolía í hylkjum eða fljótandi, hvað er gæðaolía eiginlega, skiptir máli hvaða fiskur er notaður og hvar hann er veiddur og hvort olían sé pressuð úr bara lifrinni eða úr öllum fiskinum og með hvaða aðferð olían er pressuð úr fiskinum. En eitt er víst, ef við borðum ekki fisk 4-5 sinnum í viku, þurfum við að taka omega 3 olíuna inn.
Gæða Omega -3 fiskiolía virkar breytt fyrir heilsuna
Heilinn og taugakerfið og sjónin: DHA fitusýran virkar bólgustemmandi aðallega í heila og taugarkerfi og styrkir sjónina. Mér er ansi annt um heilan minn og geri margt sem fyrirbyggir hrörnun. Ég vil halda minni, og einbeitingu og koma í veg fyrir óþarfa áhyggjur, elliglöp og Alzheimers á eldri árum. Þess vegna er mín fiskiolía með meira magn af DHA í hlutfalli við EPA.
Liðir og liðamót: Margir eru með verki í liðum og með einhverja tegund af gigt í fingrum og tám, í hjánum, öxlum og mjaðmalið. Ég er ein af þeim sem er með arfgenga gigt. Mataræðið og regluleg hreyfing er aðal verkfærið mitt til að halda verkjum og stirðleika í skefjum og omega- 3 get ég alls ekki verið án. EPA virkar meira bólgustemmandi en DHA alls staðar annars staðar í líkamanum en í heilanum. Þess vegna verður EPA líka að vera hátt, eins og í þeirri olíu sem ég tek daglega, til að minnka bólgur og verki, smyrja liðina og gera þá teygjanlega. Olían frá arktískum þorski er í náttúrulegu þríglýserið formi, sem gagnast okkur. Líkaminn upptekur og nýtir náttúrulegu þríglýseriðin 70-100% betur, af því að þær eru í því formi sem fita er í náttúrunni. Þegar upptakan er há, finnur þú fljótt mun í liðum og í húðinni líka.
Húðin og slímhúðin: Samsetningin á DHA og EPA er snilld fyrir húðina. DHA tryggir að frumuveggirnir eru fljótandi og mjúkir ( gefur ljóma og raka), og EPA kemur í veg fyrir bólgumyndun í alls konar húðvandamálum; þurrkur, útbrot, exem, akne og öldrunareinkenni. Slímhúðin er viðkvæm, sérstaklega á breytingaskeiðinu, þegar estrogen framleiðslan minnkar og stoppar. Góð fiskiolía gefur raka og teygjanleika og stemmir við bólgum og óþægindum í slímhúð, sem oft myndast við ertingu og kulda. Þess vegna er gæða omega-3 ómissandi sem stuðningsmeðferð við húðvandamálum. Þar að auki taka inn góðgerla sem markvisst virkar á slímhúða; huemeno®Me (Lyf og heilsa og Apótek).
Hjarta- og æðar: Omega-3 virkar bólgustemmandi, kemur í veg fyrir uppsöfnun á kalki og plags sem þrengir æðarnar svo háþrýstingur verður. Góð hjartaheilsa er að hafa hátt HDL kólesteról (oft kallað góða kólesterólið) og lág þríglýserið blóðfitu og þetta tvennt er það sem skiptir mig mestu máli. Gæða omega-3 hækkar HDL og lækkar hátt þríglýseríð. Omega fitusýrurnar í kaldsjávarfiski, sem eru með lágt TOTOX gildi (þránunar stuðull) virka lang best.
Efnaskipti og fitubrennsla: Skert insúlínviðnám og insúlínónæmi í frumum er aðalvaldurinn að efnaskiptavillu. Annar er ofþyngd og sykursýki gerð 2. Bólgur eru óumflýjanlegar afleiðingar, þessar micró bólgur sem þú ekki endilega finnur fyrir sem verki. Það er mjög erfitt að ná kjörþyngd ef þú ert með insúlínónæmi. Það er hægt að laga alveg á lágkolvetna og bólgustemmandi mataræði. Omega-3 vinnur á bólgunum og örvar insulínviðnámið í frumunum og eykur fitubrennslu. Hér þarf líka að huga að D3 og K2 vítamínum og taka inn sérstaka tegund af mikrobiota/ góðgerlum huemeno Me® sem m.a. eykur fitubrennsluna (Lyf og Heilsa og Apótek)
Melting og mikrobiom: Omega -3 eykur fjölbreytni á mikrobiota (góðu þarmabakteríunum), minnkar bólgur í þarmaslímhúð og gerir við göt / millibil á milli fruma í slímhúðinni (lekur þarmur). Ég mæli líka með að taka inn huemeno Me® góðgerla sem sérstaklega virka á meltingu og þarmaslímhúðina. ( Lyf og heilsa og Aptóek).
Ónæmiskerfið: Við tölum oft um að hafa lélegt ónæmiskerfi, og mælum það í t.d. tíðum kvefpestum. Ónæmiskerfið er flókið og margt sem hefur áhrif á hverning það virkar og bregst við. Eitt er víst, að þegar það bregst við, út af „einhverjum“ ástæðum, myndast bólgur. Á hinn veginn örva bólgur ónæmiskerfið þannig að þetta verður vítahringur. Omega-3 róar ekki bara ónæmiskerfið en styrkir líkaman gegn slappleika, ójafnvægi og t.d. kvefi og flensum. Omega 3 er bólgustillandi og fyrirbyggir bólgur, þess vegna er góð vörn í 1.-2. msk af omega -3 daglega.
Olía frá einni tegund af fisk eða blöndunarolía
Þegar olían er verkuð úr bara einum fiski er það oftast úr þorski, sem er kaldsjávarfiskur. Hann er með hæðsta magn af EPA og DHA. Ástæðan er að þessar fitusýrur virka eins og „frostlögur“ og halda fiskinum mjúkum og teygjanlegum í ísköldu vatninu. Ef fiskurinn væri með mettaðar fitusýrur (eins og smjör) væri hann stífur eins og pinni í Arktíska kuldanum. Á þessum miðum er sjórinn lítið mengaður og stofninn af þorski ekki í hættu.
Blönduolíur eru oftast verkaðar úr heitsjávarfisk m.a. makríl, sardínum og ansjósum. Fiskurinn er veiddur við strendur S-Ameríku eða N-Afríku, þar sem sjórinn er mengaður af alls konar eiturefnum. Olían er pressuð með kemískri aðferð sem breytir henni í svokölluð ethylestera. Það er ekki eins kostnaðsamt eins og að pressa olíuna á varfærnislegan hátt. Þessar blöndunarolíur eru oft ódýrar, og ekki hollar til inntöku að mínum dómi, enda sjaldan vottaðar með gæðastimplum.
Olíu – pressunar aðferðir
- Votpressun (algengust): Fiskurinn er hitaður upp með dampi og síðan pressaður í vél þar sem olía og vatn er skilin frá prótíninu (kjötinu).
- Sameindaeiming: Flókin aðferð þar sem olían er hreinsuð undir vacum. Það fjærlægir þungamálma (t.d. kvikasilfur) og umhverfiseitur (PCB), sem er afgerandi fyrir gæðin.
- Kaldpressun: Svipað og ólífuolíu-aðferð. Það verndar fleiri næringarefni, en er sjaldan notað á fisk vegna þess að það verður erfiðara að hreinsa umhverfiseitur úr olíunni.
- CO2 pressun: Kostnaðarsöm, en mjög varfærnisleg aðferð án þess að nota háan hita, sem verndar viðkvæmu omega-3 fitusýrurnar gegn þránun.
Hvaða olía er best í gæðum. Tjékk listi
- Olían er unnin úr kaldsjávarfiski.
- Fiskurinn er veiddur á miðum í N-Íshafinu.
- Olían er pressuð á varfærnislegan og mildan hátt stuttu eftir að fiskurinn er veiddur.
- Olían er lág í TOTOX tölu (þránun) á að vera undir 6.
- Hefur hærra DHA í hlutfall við EPA.
- Olían er fersk og góð á bragðið, það eru engir ógeðfelldir fiskiropar allan daginn.
- Inniheldur skýrar upplýsingar um hvar fiskurinn er veiddur, totox tölu og gæða- og vottunarstimpla.
- Er fljótandi og í flöskum og ekki olía í belgjum en þá er olían oft þrá.
Það eru fáar tegundur af fiskiolíu sem uppfylla þessar sanngjörnu kröfur. Ein af þeim bestu, ef ekki sú besta, er Pure Arctic Oil frá Eqology í Noregi, sem uppfyllir þær allar. Ég hef sjálf tekin hana í fimm ár og gef henni mín bestu meðmæli.
Þú getur pantað hana í 6 mánaða áskrift, en það er sá tími sem líkamin þarf til að laga og bæta og minnka bólgur í heilanum og í öllum líkamanun.
Með áskriftinni er hægt að panta tvö stk omega index blóðtest sem er einfalt að taka (lítil stunga í fingur).
Fyrsta testið er tekið áður en inntaka á olíunni hefst og það seinna eftir fimm mánaða notkun. Það sem er mælt í blóðprufunni er hlutfallið á milli omega 6 bólgumyndandi og omega 3 bólgustillandi í frumum, markmiðið er að það sé 1:1. Í öðru lagi eru mældar bólgur heila. Niðurstöður gefa þér upplýsingar um bólguástand fyrir og eftir, og það er afar áhugavert að sjá mismuninn.
6 mánaða áskrift með 2. stk omega index blóðtesti. PANTA HÉR
Fyrsta greiðsla er fyrir tvær flöskur af olíu ( tvöfaldur skammtur fyrsta mánuðinn) + tvö stk omega index test.
Allar aðrar vörur eru með 25% afslætti þegar þú ert olíu kúnni.
Viltu fleiri upplýsingar aða aðstoð?
Hafðu samband og skrifaðu mér skilaboð thorbjorg@thorbjorg.dk
Eða sendu mér skilaboð í síma +4540916413


