Fyrirlestrar um breytingaskeiðið fyrir fyrirtæki, vinnustaði, félagasamtök. thorbjorghafsteins.is

Breytingaskeiðið og vinnustaðir

Breytum áskorunum í tækifæri! Fjárfesting fyrirtækja í lífinu.

Er þinn vinnustaður tilbúinn að styðja við lykilstarfsfólk sitt á mikilvægasta skeiði lífsins?

Breytingaskeið kvenna er ekki lengur einkamál eða feimnismál; það er viðskiptalegt hagsmunamál. Konur á aldrinum 45 til 65 ára skipa oft mikilvæg ábyrgðarhlutverk innan fyrirtækja, búa yfir dýrmætri reynslu og þekkingu sem vinnustaðir mega ekki við því að missa. Með því að opna á umræðuna og bjóða upp á faglega fræðslu geta fyrirtæki tryggt aukna starfsgetu, dregið úr fjarveru og skapað eftirsóknarvert starfsumhverfi þar sem öllum líður vel.

Af hverju skiptir þetta máli fyrir fyrirtæki?

Rannsóknir frá nágrannalöndum okkar sýna svo ekki verður um villst að vanþekking á breytingaskeiðinu hefur raunverulegan kostnað í för með sér. Í Danmörku er áætlað að veikindadagar og fjarvistir tengdar breytingaskeiðinu kosti samfélagið milljarða króna og þúsundir vinnustunda á ári hverju.

Margar konur upplifa einkenni sem hafa áhrif á sjálfsmynd, einbeitingu og orku. Þegar vinnustaðurinn sýnir frumkvæði, eykur skilning stjórnenda og býður upp á lausnir, breytist dæmið. Þekking dregur úr óöryggi og eykur tryggð starfsfólks við fyrirtækið.

Sérþekking Þorbjargar Hafsteins í þína þágu

Þorbjörg Hafsteins hefur um árabil verið leiðandi í fræðslu um heilsu kvenna og hormónakerfið. Hún hefur veitt stórfyrirtækjum og stéttarfélögum á Norðurlöndum, s.s. Nordea, Coop og Finansforbundet, dýrmæta innsýn í hvernig megi bæta starfsumhverfið með markvissri fræðslu um breytingaskeiðið.

Þorbjörg býður upp á líflegt og faglegt erindi sem rýfur þögnina og veitir hagnýt verkfæri sem nýtast strax. Fræðslan er hönnuð fyrir alla – jafnt konur á breytingaskeiði, samstarfsfólk þeirra og stjórnendur sem vilja standa sig vel í mannauðsstjórnun.

Hvað fær vinnustaðurinn út úr fræðslunni?

Fyrirlestrarnir eru hnitmiðaðir og lausnamiðaðir, hvort sem þeir eru haldnir á staðnum eða í streymi.

Farið er yfir:

  • Hormónakerfið og breytingarnar: Hvað er raunverulega að gerast í líkamanum?
  • Vinnulífið og einkennin: Hvernig geta einkenni eins og svefnleysi, hitakóf og heilaþoka haft áhrif á frammistöðu og hvernig má tækla það?
  • Hagnýtar lausnir: Mataræði, lífsstíll og úrræði sem bæta líðan, auka orku og endurheimta starfsgleðina.
  • Betri menningu: Hvernig við sköpum opið samtal sem eykur traust og vellíðan á vinnustaðnum.

Fjárfestu í dýrmætasta auðlindinni – fólkinu þínu.
Með því að bóka fræðslu hjá Þorbjörgu tekur fyrirtækið mikilvægt skref í átt að heilbrigðari vinnustaðamenningu og aukinni samkeppnishæfni.

Viltu bóka fyrirlestur eða fá nánari upplýsingar?
Hafðu samband til að fá tilboð og finna tíma sem hentar þínum vinnustað. Sendu fyrirspurn á thorbjorg@thorbjorg.dk