Breytingaskeiðið á toppnum! Online 8. apríl

Breytingaskeiðið á toppnum! Online 8. apríl

12.900 kr.

Breytingaskeiðið og „toppur“ er kannski ekki alveg í samræmi við hvernig þú upplifir heilsuna einmitt núna?

 

En það mun aldeilis breytast!

Tveggja vikna online námskeið fyrir konur ca 45-60+ ára!

Það er svo margt að gerast í heimi kvenna á breytingaskeiðinu um þessar mundir. Systur! Við erum rétt að byrja, við höfum hátt og við tölum um breytingaskeiðið sem aldrei fyrr og vitum miklu meira en fyrir bara fimm árum síðan. En ekki nógu mikið samt! Vissirðu t.d. að það eru 48 einkenni sem eru tengd við breytingaskeiðið! Og að ein af fjórum konum eru enn með alvarleg einkenni átta árum eftir

En þetta námskeið fjallar fyrst og fremst um þig! Að þér líði miklu betur, orkan fari í topp, létta á öllum einkennum, næra líkama og sál og borða dásamlegan mat.

Ó jú! Þó að mataræðið sé sykurlaust verður fullt af náttúrulega sætu tríti og kósýlegheitum. Nema hvað!

Nokkrar staðreyndir um breytingaskeiðið:

  1. Staðfest hafa verið 48 mismunandi einkenni tengd við breytingaskeiðið.
  2. 97% af konum á breytingaskeiðinu í Danmörku hafa eitt eða fleiri einkenni.
  3. Lífsstílsþættir og breytingar á lífsstíl hafa veruleg áhrif á flest af þessum einkennum.
  4. Undirliggjandi heilsufarsþættir eru tengdir bólgum í frumum og hafa áhrif á hormóna jafnvægið.
  5. Breytingaskeiðið heftst með fyrirtíðahvörfum kringum 45 ára aldurinn, og eftirtíðahvörf, sem varir að eilífu!
  6. Hormónauppbótarmeðferð (HRT) hefur í nær 25 ár verið misskilin og mistúlkuð.

Nokkur dæmi um helstu og velþekkt einkenni sem konur upplifa:

  • Hitakóf, nætursviti.
  • Ófullnægjandi svefn.
  • Þreyta og orkuleysi.
  • Heilaþoka og skert minni.
  • Verkir í liðum og vöðvum.
  • Þyngdaraukning, sérstaklega um maga og miðjuna.

Nokkur dæmi um önnur einkenni, sem við tengjum ekki endilega við breytingaskeiðið:

  • Höfuðverkur og mígreni.
  • Þurrkur í slímhúð, alls staðar.
  • Endurteknar blöðrubólgur og þvagrásarsýkingar.
  • Skert eða engin kynlífslöngun.
  • Frosin öxl.
  • Húðvandamál; bólur og ofsakláði.
  • Burning mouth syndrome ( brunatilfinning í munnholi).
  • Meltingarvandamál.

Vanlíðan, þreyta, orkuleysi, verkir, þrjósk magafita, sem ekkert virðist bíta á. Svona þarf þetta ekki að vera!

Fimm góðar og gildar ástæður til að sækja þetta námskeið:

  1. Þú ert þreytt á að vera þreytt!
  2. Þú vilt losna við bólgur, liðverki, þurra slímhúð og heilaþoku!
  3. Þú ert búin að prófa margt en ekki sykurlaust lágkolvetna og hormónavænt mataræði.
  4. Þú vilt vita meira um hormóna og hormónauppbótarmeðferð.
  5. Þú vilt losna við aukakílóin og losna við sykurpúkann fyrir fullt og allt!

Ég er með þetta!

Og við skulum bara hafa það skemmtilegt á meðan við lærum!

Skráðu þig strax í dag og láttu þig hlakka til! Nýtt líf og betri líðan bíða þín!

 

Námskeiðið fer fram á Zoom í rauntíma og á lokuðu svæði í hóp á FB

 

Fyrsti kennslutími: miðvikudagur 8. apríl kl 18 á Zoom (upptaka af kennslu ef þú kemst ekki)

  • Hormónabúskapurinn og efnaskiptaheilsa.
  • Einkenni og líðan tekin fyrir og lausnamiðaðar úrlausnir.
  • Mataræðið. Hvað áttu að borða.
  • Markmið, skipulag, rútína, góð ráð.
  • Bætiefni.
  • Spurningar & Svör

Annar kennslutími: mánudagur 20. apríl kl 18 á Zoom (upptaka af kennslu ef þú kemst ekki)

  • Spurningar & Svör.
  • Meltingin og microbiome
  • Annað eftir þörfum.

 Innifalið í námskeiðinu: 

  • Tveir kennslutímar á Zoom
  • Aðhald, stuðningur, hvatning og innblástur á lokuðu svæði á fb í 14 daga!
  • Glærur frá kennslu.
  • Hráefnislisti með lágkolvetna hormónavænum mat.
  • Viku plan með tillögum af samsetningu á hráefninu.
  • Uppskriftir
  • Bætiefnalisti með hnitmiðuðum bætiefnum.
  • Og margt margt fleira!

Það með litla letrinu.

  • Ég mæli með að þú skráir þig sem fyrst. Plássin eru takmörkuð!
  • Þegar þú hefur skráð þig og greitt er þitt pláss tryggt!
  • Þú færð póst frá Þorbjörgu áður en námskeiðið hefst með upplýsingum, hlekk á fyrsta kennslu tíman á Zoom, og hlekk á lokaða FB hópinn.
  • Öll kennslugögn verða í lokaða FB hópnum, þú getur hlaðið þeim niður í tölvuna eða í símann þinn.
  • Zoom kennslan verður tekin upp og  þú getur horft á videó upptökuna ef þú kemst alls ekki á fundinn í raun tíma.
  • Ég mæli með að þú eigir eða fáir lánaða bókina mína Ketófllex 3-3-1 (kaupa hér). Þar eru mjög góðar og fræðandi upplýsingar og uppskriftir sem þú vilt ekki vera án.
  • Hikaðu ekki við að hafa samband ef þú ert með spurningar
    thorbjorg@thorbjorg.dk