Breytingaskeiðið og „toppur“ er kannski ekki alveg í samræmi við hvernig þú upplifir þig einmitt núna?
En það mun aldeilis breytast! Topp orka og vellíðan í boði!
Tveggja vikna staðar- og online námskeið fyrir konur 45-60+ ára!
Vanlíðan, þreyta, orkuleysi, verkir, þrjósk magafita, sem ekkert virðist bíta á.
Svona þarf þetta ekki að vera!
Sex góðar og gildar ástæður til að sækja þetta námskeið:
- Þú ert þreytt á að vera þreytt!
- Þú vilt losna við bólgur, liðverki, þurra slímhúð og heilaþoku!
- Þú ert búin að prófa margt en ekki sykurlaust lágkolvetna og hormónavænt mataræði.
- Þú vilt vita meira um hormóna og hormónauppbótarmeðferð.
- Þú vilt losna við þrjósku kviðfituna og segja skilið við sykurpúkann fyrir fullt og allt!
- Þú ert spennt fyrir að uppgötva hvað margt annað lagast þ.á.m. meltingin, svefninn og minnið!
Það er ýmislegt gott að gerast í heimi kvenna á breytingaskeiðinu um þessar mundir. Systur! Við erum rétt að byrja, við höfum haft hátt um hríð og heimurinn er að hlusta. Nýjar stórar rannsóknir, fjarlæging á viðvörunum (black box warnings) á hormónalyfjum í USA og nýtt viðhorf og skilningur á heilsu kvenna.
Við konur förum í gegnum breytingaskeiðið á mismunandi hátt, hormónauppbót er ekki lausnin fyrir allar konur og breyting á lífsstíl getur breytt öllu til batnaðar.
Þetta námskeið fjallar fyrst og fremst um þig! Að þér líði miklu betur, orkan fari í topp, létta á öllum einkennum, næra líkama og sál og borða dásamlegan mat.
Ó jú! Mataræðið er sykurlaust og lágkolvetna en nóg af náttúrulega sætu tríti og kósýlegheitum. Nema hvað!
Nokkrar staðreyndir um breytingaskeiðið:
- Staðfest hafa verið 48 mismunandi einkenni tengd við breytingaskeiðið.
- 97% af konum á breytingaskeiðinu í Danmörku hafa eitt eða fleiri einkenni.
- Lífsstílsþættir og breytingar á lífsstíl hafa veruleg áhrif á flest af þessum einkennum.
- Undirliggjandi heilsufarsþættir, sem oftast eru bólgutengdir, hafa áhrif á breytingar á hormónum á breytingaskeiðinu.
- Breytingaskeiðið heftst með fyrirtíðahvörfum kringum 45 ára aldurinn, og eftirtíðahvörf, sem vara að eilífu!
- Hormónauppbótarmeðferð (HRT) hefur í nær 25 ár verið misskilin og mistúlkuð.
Nokkur dæmi um helstu og velþekkt einkenni sem konur upplifa:
- Hitakóf, nætursviti.
- Ófullnægjandi svefn.
- Þreyta og orkuleysi.
- Heilaþoka og skert minni.
- Verkir í liðum og vöðvum.
- Þyngdaraukning, sérstaklega um maga og miðjuna.
Nokkur dæmi um önnur einkenni, sem við tengjum ekki endilega við breytingaskeiðið:
- Höfuðverkur og mígreni.
- Þurrkur í slímhúð, alls staðar.
- Endurteknar blöðrubólgur og þvagrásarsýkingar.
- Skert eða engin kynlífslöngun.
- Frosin öxl.
- Húðvandamál; bólur og ofsakláði.
- Burning mouth syndrome ( brunatilfinning í munnholi).
- Meltingarvandamál.
Ég er með þetta! Það er engin töfrapilla en lausn sem er töfrum líkast!
Við skulum bara hafa það skemmtilegt á meðan við lærum!
Skráðu þig strax í dag og láttu þig hlakka til! Nýtt líf og betri líðan bíða þín!
Fyrsti kennslutími: miðvikudagur 11. mars kl 18 – 20.30 í Reykjavík
- Hormónabúskapurinn, efnaskiptaheilsa og HRT.
- Einkenni og líðan tekin fyrir og lausnamiðaðar úrlausnir.
- Mataræðið. Hvað áttu að borða.
- Meltingin mikilvæga.
- Markmið, skipulag, rútína, góð ráð.
- Ráðleggingar um hagnýt bætiefni.
- Spurningar & Svör
Annar kennslutími: miðvikudagur 25. mars kl 18 á Zoom (upptaka af kennslu ef þú kemst ekki)
- Spurningar & Svör.
- Annað eftir þörfum.
Innifalið í námskeiðinu:
- Tveir kennslu fundir:
-Sá fyrsti í Heilsumiðstöð Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík.
-Sá síðari á Zoom
- Aðhald, stuðningur, hvatning og innblástur á lokuðu svæði á fb í 14 daga!
- Glærur frá kennslu.
- Hráefnislisti með lágkolvetna hormónavænum mat.
- Viku plan með tillögum af samsetningu á hráefninu.
- Uppskriftir
- Bætiefnalisti
- Og margt margt fleira!
Það með litla letrinu.
- Ég mæli með að þú skráir þig sem fyrst. Plássin eru takmörkuð!
- Þegar þú hefur skráð þig og greitt er þitt pláss tryggt!
- Þú færð póst frá Þorbjörgu áður en námskeiðið hefst með upplýsingum og aðgang á lokaða FB hópinn.
- Öll kennslugögn verða í lokaða FB hópinn, þú getur hlaðið þeim niður í tölvuna eða í símann þinn.
- Zoom kennslan verður tekin upp og þú getur horft á videó upptökuna ef þú kemst alls ekki á fundinn í raun tíma.
- Ég mæli með að þú eigir eða fáir lánaða bókina mína Ketófllex 3-3-1 (kaupa hér). Þar eru mjög góðar og fræðandi upplýsingar og uppskriftir sem þú vilt ekki vera án.
- Hikaðu ekki við að hafa samband ef þú ert með spurningar
thorbjorg@thorbjorg.dk
