Leiðarvísir fyrir byrjendur. Heilsan, orkan og þyngdarstjórnun.
Þessi bæklingur er fyrir þig sem vilt efla og bæta heilsuna og taka ábyrgð á því hvernig þér líður. Bæklingurinn er ætlaður byrjendum og þér sem hafa áhuga á að prófa carnivore (kjöt) mataræðið. Hér finnur þú hagnýtar grunn upplýsingar, leiðbeiningar, mataráætlun, upplýsingar um bætiefni og uppskriftir. Allt sem þú þarft til að fara vel af stað.
Á carnivore fæði borðar þú eingöngu dýraafurðir. Með örfáum undantekningum, er ekkert frá eða sem hefur uppruna í jurta- og plönturíkinu. Carnivore er talið vera það mataræði sem við erum hönnuð til að borða og sem líkaminn nærist best á. Aðal fæðan sem við upprunalega borðuðum á steinöld var kjöt og löngu seinna eða fyrir ca 10.000 árum hófst ræktun á korni og plöntum.
Auðvitað er það einstaklingsbundið hvaða breytingar og hversu fljótt þær eiga sér stað. Það fer eftir því hvar þú stendur miðað við núverandi mataræði og lífsstíl, hvernig heilsan er í dag og ýmsu öðru.
Þegar þú tekur skrefið og ferð á kjötfæði getur þú átt von á einhverju eða öllu neðangreindu:
- Fitubrennsla og þyngdartap eykst.
- Jafnvægi á blóðsykri.
- Heilbrigt insulínviðnám.
- Bólgur minnka alls staðar.
- Minni verkir t.d. gigtar- og bólguverkir í liðum.
- Betri mettunartilfinning og minni þörf á að narta og borða.
- Sykurþörfin minnkar verulega og hverfur með tímanum.
- Betri fókus og einbeiting, skýrari hugsun og betra minni.
- Meiri jafnvægi á geðheilsu.
- Stöðug orka allan daginn, minni orku sveiflur.
- Betri svefn.
- Almennt betri vellíðan.
